Glæsileg jarðhæð í Green hills
Íbúðin er staðsett í lokuðum kjarna sem heitir Green Hills, sem er í Los Dolses/Villamartin.
Íbúðin er með þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi, opið alrými - eldhús/stofa.
Það er um 20 fm glerskáli útaf stofunni sem hægt er að opna allan hringinn.
Stór suður verönd með húsgögnum og gasgrilli.
Sameiginlegt útisvæði með tveimur úti sundlaugum, einni upphitaðri inni sundlaug, sauna og líkamsrækt. Leiksvæði fyrir börn og borðtennis.
Mikið af þjónustu í nánasta umhverfi, eins og matvöruverslun, veitingastaðir, apótek, markaður og verslunarmiðstöðin La Zenia Boulevard.
Stutt á Villamartin Golfvöllinn og fleiri skemmtilega velli.
Vinsamlegast hafðu samband hér til að panta upplýsingar um íbúðina.