Glæsilegt raðhús í El Raso. Allt fylgir með - Mikið lækkað verð
Komið er inn í anddyri með góðum fataskáp. Eldhúsið er opið með eyju og granítborðplötum. Stofa og borðstofa eru í einu rými með stórum gler-rennihurðum sem opnast út á lóð.
Þrjú svefnherbergi eru í húsinu (tvö með hjónarúmum og eitt með tveimur einstaklingsrúmum) og tvö fullbúin baðherbergi (annað þeirra er en-suite innaf hjónaherbergi) en að auki er gestasnyrting á fyrstu hæð. Gengið er út á svalir frá stigapalli á annarri hæð og þaðan uppá stórar þaksvalir með fallegu útsýni yfir hverfið, þar sem sólar nýtur allan daginn.
Allt innbú fylgir með, vönduð húsgögn og tæki.
Húsið snýr í suður og er staðsett í lokaðri götu. Einkabílastæði á lóðinni. Húsið var málað að utan árið 2023
Aukahlutir sem fylgja húsinu:
Sundlaug
Upphitunartæki fyrir sundlaug
Rafknúið bílahlið + fjarstýringar
Þaksvalir
Sjálfsvökvunarkerfi
Loftræstikerfi
Tvöfaldur fataskápur í andyri
Zik zak hillur framan við eldhús
Eldhúseyja með granítplötu
20fm pergóla (sólhlíf) á verönd